10 March 2007

Update á bílamálum.

Ég, Ásdís og Doddi kíkjum út á völl í gær og fórum bæði á Hertz og Avis. Við skoðuðum báða bílana sem voru nefndir hér að neðan ásamt econolinerinn hjá Avis og enginn af þeim virðist koma sér vel fyrir okkur. Hins vegar sáum við Toyotu Sienna sem virðist henta okkur fullkomlega. Hann er mjög rúmgóður að sitja í og skottið leynir heldur betur á sér.

Ég veit að Nína og þau eru með svona bíl fyrir skutlu hjá Hertz á Íslandi og svo eigi Gerða og Addi svona bíl fyrir Álafoss og eru mjög ánægð með hann. Þægilegt að keyra hann etc. Þá er bara að liggja á bæn og vona að við getum valið nákvæmlega þessa tegund af bíl en ekki bara flokkinn "minivan".

Þetta eru mjög rúmgóð sæti og skottið er með holu langt niðrí gólf :) Ætti að vera alveg bara nóg pláss fyrir okkur :) Nína ætlar að fara í þessi mál strax á mánudagsmorgun. I´ll keep you posted.

Adíos, LGG.

No comments: