27 March 2007

Ferðalagsskipulag

Hæhæ, var í einhverjum vandræðum að pósta á BUB síðuna þannig að ég fæ bara Gumma til að færa þetta yfir ef þið viljið :) En tjekk ðiss át.
Ég er búin að setja upp skipulag um hugmynd að einni leið sem við getum farið á þessum þremur vikum. Það er miklu auðveldara að skoða þetta frekar og pæla nákvæmlega í leiðunum þegar eitthvað svona liggur fyrir þannig að endilega skoðið þetta í spað og komið með hugmyndir. Það væri nefnilega rosalega fínt ef við gætum orðið sátt með eitthvað eitt plan sem við myndum svo reyna að fylgja svona passlega vel gegnum ferðina. Aðallega til að geta pantað hótel eins og í Las Vegas og fleira.
Þess ber helst að geta að ég tók út þennan óþarfa hring þegar við komum til Californinu þannig að stefnan er núna sett á að fara frá LA upp til San Francisco. Ef það eru einhver mótmæli gegn því endilega láta heyra í sér strax :)

Við þurfum nefnilega að fara að ganga frá bílamálunum sem fyrst og er planið núna að taka bílinn að kvöldi 21. maí og skila honum í San Francisco þann 11. júní. Þannig erum við með bílinn í akkurat 3 vikur sem kemur best út verðlega séð. Nína var því að spá í að fara að ganga frá þessum málum og borga bílinn og við myndum síðan bara leggja inn á hana.. Hvernig lýst ykkur á það?

Hér er listinn yfir það sem ég er búin að setja upp:
(klikkið á myndina til að sjá hana stærri)

Síðan var ég búin að setja upp í Word og þar getum við bætt inn hvað við getum gert á hverjum áfangastað fyrir sig:

22. maí 2007

Brottför frá Boston, MA kl 08.00
Keyrt til Brooklyn, New York, 218 mílur, 4 klst og 9 mín.
Pikkum upp Ólöfu og Gumma, borðum hádegismat og leggjum svo í hann.
--------
Keyrum í gegnum Philadelphia, PA 97 mílur , 2 klst og 3 mín
Keyrum áfram til Baltimore, MD 105 mílur, 1 klst og 55 mín
Förum síðan áfram til Washington, DC 38.7 mílur , 1 klst og 1 mín

Hér ætti dagur að vera að kveldi kominn, þá sér í lagi ef við myndum stoppa örlítið í Philadelphiu og Baltimore... skoðum þetta betur.
Finna hótel/mótel/B&B í Washington.

23. maí 2007

Skoðunardagur í Washington

Hvíta húsið – Minnismerkið – Smithsonian safnið og svo frv.

Út að borða um kvöldið... keyra jafnvel eitthvað út fyrir borgina og gista á öðru módeli.

24. maí 2007

Keyrum til Charleston, West Virginia 362 mílur, 5 klst og 44 mín

Frá Charleston til Louisville, KY 247 mílur, 3 klst og 53 mín

Gista einhversstaðar þar í eina nótt.

25. maí 2007

Keyra frá Louisville til Nashville, TN 175 mílur, 2 klst og 54 mín

Skoða sig um.. fara á tjúttið kannski um kvöldið – Heimir mælti með fínu tjútti

26. maí 2007

Frá Nashville til Memphis, TN 212 mílur, 3 klst og 15 mín

Graceland Elvis Presley – Skoða mannlífið – Gista eina nótt í Memphis

27. maí 2007

Frá Memphis til Little Rock, AR, 137 mílur, 2 klst og 5 mín

Frá Little Rock til Oklahoma City, OK 339 mílur, 5 klst og 2 mín

28. maí 2007

Oklahoma city skoðuð
Six Flags í Oklahoma, rússibanagarður og vatnagarður
Guthrie eina kveikjara safnið í heiminum Gilcrease safn Bombing memorial

29. maí 2007

Frá Oklahoma city til Amarillo, TX 259 mílur, 3 klst og 51 mín

Amarillo http://www.amarillo.com/
http://www.visitamarillotx.com/navigation/frames.html

Fara á Rodeo Fara í Loftbelg kúreka stuð Jeiii

30. maí 2007

Frá Amarillo til Canon City, CO 359 mílur, 6 klst og 3 mín
Skoða stærstu hengibrú í heimi

Frá Canon City gegnum Colorado Springs til Denver, CO 114 mílur, 2 klst og 11 mín

Gista einhversstaðar í kringum Denver


31. maí 2007

Skoða Denver

Keyra áleiðis til Moab, UT Denver til Moab 355 mílur, 5 klst og 34 mín

Gista í einhverjum kósý sveitakofum... ble

01. júní 2007

Skoða Arches National Park

Fara síðan til Moab þar er hægt að leigja fjórhjól og allskonar skemmtileg tæki og leika sér í hólum og hæðum jeiii

Keyra um kvöldið niður að Four states meet monument 150 mílur, 2 klst og 46 mín

Arches National Park

Four states meet (Four Corners Monument) Google Map: 36.998976,-109.045172 http://en.wikipedia.org/wiki/Four_Corners_Monument


Gista einhversstaðar


02. júní 2007

Leggja snemma af stað...

Keyra niður að Grand Canyon, AZ 225 mílur, 4 klst

Eyða deginum í Grand Canyon

Keyra upp að Hoover Dam, NV, 243 mílur, 3 klst og 49 mín

Ath opnunartíma.. Skoða Hoover Dam.

Keyra upp til Las Vegas, NV 33,1 míla, 38 mínútur

Gista þessa nótt í Las Vegas
Casino og fjör um kvöldið

03. júní 2007

Las Vegas Baby með öllu tilheyrandi fjöri, tjútti og gambli

04. júní 2007

Leggja af stað frá Las Vegas, til Los Angeles, CA 271 míla, 4 klst og 3 mín


Skoða LA - gista í LA

05. júní 2007

Skoða Los Angeles

Beverly Hills
Santa Monica Blvd.
Rölta á boardwalk á venice beach.
Kínabíóið
Hollywood blvd
Hollywood
Rodeo Drive
Bel Air

06. júní 2007

Keyra upp Californinu

Fara á ströndina í sólbað í Malibu og í mat til Matthew McConaughey

Los Angeles til Malibu 28,2 mílur 39 mín
Malibu til Santa Barbara 75,9 mílur 1 klst 22 mín
Santa Barbara til San Jose 290 mílur 4 klst 41 mín
San Jose til San Francisco 48 mílur, 53 mín

07. júní 2007

Klára að keyra upp til San fran ef við gerum það ekki á einum degi...


08. júní 2007


Komið til San Francisco

Bryggjurnar, brýrnar, garðarnir, alcatraz


09. júní 2007

San Francisco

Ef við viljum kíkja á Yosemite National Park:
U.þ.b. 4- 5 tímar hvora leið 195 mílur

Eins getum við gist eina nótt í Napa Valley

10. júní 2007

San Fran

Ólöf og Gummi fljúga til NEW YORK

11. júní 2007

Skila bílnum

1 comment:

Anonymous said...

Jó jó. Brilljant færlsa. Lagaði vesenið sem þú lentir í og setti inn þessa færslu fyrir þig á síðuna.